Sumarvefur Rafræn stelpur Tómas steianr lára Stelpur
 
7.6.2010

Vogasel lokar.

Kæru foreldrar /forráðamenn
 
Í dag er síðasti dagurinn í Vogaseli þetta skólaárið.
Þökkum kærlega fyrir góðan vetur og erum við orðin spennt fyrir sumari og sól.
Vil ég minna á að Vogasel verður með sumarfrísund í sumar frá 10.júní. í sumar. Skráning fer fram á rafræn rvk.is
 
Bestu kveðjur
Starfsfólk Vogasels.
2.6.2010

Grillpartý!!!

Nú er starf Vogasels að líða undir lok á þessum starfsvetri.  Í tilefni þess og sumarblíðunar sem virðist vera taka völdin, ætlum við að gera okkur glaðan dag, föstudaginn 4. júní.  Grillaðar verða pylsur og boðið upp á djús til að skola niður með.  Búast má við mikilli skemmtun og verður myndavélin höfð á lofti fyrir þau sem sjá sér ekki fært að koma.
 
MBK Starfsfólk Vogasels.   
2.6.2010

Sumarfrístund í frístundaheimilum Kringlumýrar

 

Búið er að opna fyrir skráningu í sumarfrístund á Frístundaheimilum Kringlumýrar í Rafrænni Reykjavík. Sumarfrístund hefst 14. júní á flestum starfsstöðvum og stendur til 20. ágúst að undanskildum 2 vikum (19.-30 júlí), en þá er lokað.
 
Sumaropnun verður eftirfarandi:
Krakkakot: 2. júní - 11. júní (frá 14. júní verður sameiginleg opnun Krakkakots og Álftabæjar í Álftabæ, Safamýri 28).
Álftabær og Krakkakot: 14. júní - 9. júlí og 9. ágúst - 20. ágúst.
Vogasel: 10. júní - 11. júní (frá 14. júní verður sameiginleg opnun Vogasels og Glaðheima í Glaðheimum við Holtaveg).
Glaðheimar og Vogasel: 14. júní - 9. júlí og 9. ágúst - 20. ágúst (sérdeild Glaðheima verður einnig opin vikurnar 12. júlí til 16. júlí og 3. ágúst - 7. ágúst).
Sólbúar: 14. júní - 16. júlí og 30. júlí - 20. ágúst.
Neðstaland: 14. júní - 9. júlí og 9. ágúst - 20. ágúst (Sameiginleg opnun Sólbúa og Neðstalands verður vikurnar 12. júlí til 16. júlí og 3. ágúst - 7. ágúst í Sólbúum við Breiðagerðisskóla).
Laugarsel: 14. júní - 16. júlí og 3. ágúst - 20. ágúst.
 
Nánari upplýsingar um þemavikur o.fl. má finna á sumarvef Reykjavíkur,
14.5.2010

Heill dagur 31. maí

Nú er byrjað að taka við skráningum á heilan dag þann 31. maí næstkomandi.  Síðasti dagur til að skila inn skráningu er þriðjudaginn 26. maí.  Vonum við að sem flestir nýti sér þennan kost og að Vogasel verði iðandi af lífi þann 31.
 
Hægt er að sækja skráningarblað hér til vinstri, undir flokknum Eyðublöð.
 
MBK Starfsfólk Vogasels
  Í dag er 29. júlí 2010
<júlí 2010>
mþmffls
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
2345678
Mánaðaryfirlit Vikuyfirlit
Flokkayfirlit Leit
Á DÖFINNI
Engir viðburðir eru skráðir á næstunni