Rafræn Sumarvefur Óvissuvika Vatnsvika Litavika Leikjavika
 
13.7.2010

Nú styttist í sumarlokun

Að þessari viku lokinni hefst sumarlokun Sólbúa sem stendur yfir í tvær vikur. Sólbúar opna aftur 3. ágús (á þriðjudeginum eftir verslunarmannahelgina). Við viljum minna foreldra á að enn eru nokkur laus pláss í vikurnar eftir sumarlokun og er hægt að skrá í gegnum Rafræna Reykjavík.
Auk þess eru komnar inn nýjar myndir úr sumarstarfinu sem hefur verið rosalega skemmtilegt fram til þessa. Við vonumst til að sjá sem flesta aftur í ágúst og óskum öllum góðra stunda í sumarfríinu sínu.
1.7.2010

Wipe-out í Nauthólsvík

Á miðvikudaginn 30. júní var haldin heljarinnar Wipe-out keppni í Nauthólsvík þar sem börnin fengu að spreyta sig á stórri og krefjandi þrautabraut. Meðal þeirra hindrana sem þurfti að yfirstíga má nefna stóru "rauðu" boltana (sem reyndar voru mislitir að þessu sinni). Myndir frá þessari bráðskemmtilegu keppni má finna í myndaalbúminu okkar hérna vinstra megin á síðunni.
24.6.2010

Myndir úr sumarstarfinu

Nú er sumarstarfið komið á fulla ferð og búið að vera mikið fjör hjá okkur fyrstu dagana. Myndir frá Leikjaviku eru komnar hingað inn á síðuna ásamt nokkrum vikum úr Litavikunni. Ef foreldrar óska eftir því að fá afrit af einhverjum myndum er hægt að setja sig í samband við okkur í Sólbúum með því að senda okkur tölvupóst á solbuar@itr.is
 
  Í dag er 29. júlí 2010
<júlí 2010>
mþmffls
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
2345678
Mánaðaryfirlit Vikuyfirlit
Flokkayfirlit Leit
Á DÖFINNI
Engir viðburðir eru skráðir á næstunni