Rafræn Sumarvefur Íþróttir sindri Hlini Ólafur
 
28.5.2010

Veturinn að klárast.

Jæja. Nú er skólaveturinn að klárast og þá er starfið alltaf pínu öðruvísi. Sem dæmi erum við búin að vera úti allan daginn, alla daga í þessari viku en það er bara gaman í svona góðu veðri. Einungis er um ein og hálf vika eftir af vetraropnun Neðstalands, síðan tekur við tveir starfsdagar það sem við erum með lokað og svo hefstu sumaropnunin. Endilega ekki gleyma að skrá börnin í sumarfrístund, það er alltaf rosa gaman á sumrin.
 
Einning viljum við nota tækifærði og tilkynna að Iðunn María Sigurðardóttir sem hefur sinnt stöðu aðstoðarverkefnastjóra í vetur er að hætta núna um mánaðarmótin.
Einnig eru Hrund og Kristín hættar og Heiðrún hættir einnnig núna um mánaðarmótin.
 
Við þökkum þeim öllum fyrir veturinn og efum ekki að þær eigi eftir að sakna okkar.
17.5.2010

Síðasti skráningardagur í dag!!

Í DAG ER SÍÐASTI SKRÁINGARDAGUR FYRIR HEILA DAGINN Á FÖSTUDAG ER Í DAG 17.MAÍ. EKKI GLEYMA AÐ SKRÁ BÖRNIN!!!

12.5.2010

Heill dagur 21.maí

Þann 21.maí næstkomandi verður síðasti heili dagur skólaársins í Neðstalandi. Hafin er skráning fyrir heila daginn og sendum við út skráningarblöð í gær. Einnig er hægt að nálgast skráningarblaðið hér fyrir neðan á heimasíðunni.
Minnum sérstaklega á að ekki er tekið við skráningu eftir auglýstan síðasta skiladag sem er að þessu sinni 17.maí nk.
Einnig þurfa börnin að koma með tvö nesti en við bjóðum uppá heitan mat í hádeginu.
Ekki er hægt að koma með dagskrá fyrr en skráningin er komin í ljós en hugmyndin er að reyna að nýta góða veðrið!!!
20.4.2010

Barnamenningarhátíð

Nú er hafin Barnamenningarhátíð í Reykjavík og ætlum við í Neðstalandi að reyna að halda aðeins uppá hana!!! Í boði verða útileikir, sköpun, upplestur og mögulega fleira en frekar verður greint frá þessu í lok vikunnar.
 
Fyrir þá sem vilja kynna sér hátíðina betur er hægt að gera það á:

Fleiri fréttir

  Í dag er 29. júlí 2010
<júlí 2010>
mþmffls
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
2345678
Mánaðaryfirlit Vikuyfirlit
Flokkayfirlit Leit
Á DÖFINNI
Engir viðburðir eru skráðir á næstunni