1.9.2010
Laugó opnar!
Jæja elskurnar!
Laugó er opnað að nýju og bráðum kemur hér dagskrá fyrir mánuðinn en í kvöld ætlum við að taka vel á móti Buskanum! Í dag er opið 14-19 og 19:30-22:00.
Hlökkum til að sjá ykkur öll!
Eigið góðan dag dag :)
16.6.2010
Sumarstarf fyrir 10-12 ára
Frístundamiðstöðin Kringlumýri býður uppá fjölbreyttar
smiðjur og
viðburði fyrir börn sem hafa lokið 5., 6. og 7. bekk (fædd '97–'99) úr
Álftamýrarskóla, Breiðagerðisskóla, Fossvogsskóla, Hvassaleitisskóla,
Langholtsskóla, Laugalækjarskóla, Laugarnesskóla og Vogaskóla.
Smiðjurnar
hófust miðvikudaginn 9. júní og verða frá kl. 09:00 – 16:00 alla virka
daga fram til miðvikudagsins 14. júlí.
ATHUGIÐ!
Sumarstarfið
fyrir 10-12 ára fer fram á tveimur stöðum:
Í félagsmiðstöðinni
Bústaðir (undir Bústaðakirkju, Tunguvegi 25) vikurnar 9. júní - 25.
júní.
Í félagsmiðstöðinni Laugó (inní Laugalækjarskóla, Leirulæk
2) vikurnar 28. júní - 14. júlí.
Skráning stendur yfir inná
Rafrænni Reykjavík, sjá nánar á heimasíðunni www.itr.is/sumar og hér til hliðar undir "Sumarstarf fyrir 10-12 ára".