Rafræn Sumarvefur
 
9.7.2010

Sumar og sól

Sumarið líður hratt og börnin í Laugarseli hafa haft nóg fyrir stafni. Nú er leikjaviku að ljúka og hafa börnin meðal annars farið í badminton, sund, fimleika, klifur og strandblak.

Í vatnsvikunni, það er að segja vikuna 28. Júní til 2. Júlí var einnig brallað margt skemmtilegt en þá fórum við í sund í Mosfellsbæ og í vatnsstríð, bjuggum okkur til veiðistangir og fórum niður á höfn að dorga, en þá veiddust hvorki meira né minna en fimm fiskar. Þá skiptum við hópnum upp síðasta daginn, þar sem 1. Bekkur fór í elliðarárdalinn og indjánagil, en 2.-4. Bekkur var í allskonar tilraunastarfsemi í Laugarseli og fór svo í sirkusskólann. Báðir hópar skemmtu sér konunglega.

Myndir úr þessum tveimur vikum eru komnar inn í myndasafnið .

Næsta vika er svo síðasta vikan fyrir lokun, en það er vinavika. Dagskrá fyrir þá viku má sjá hér til hægri. Sú vika verður heldur róleg, en skemmtileg enga síður.

Annars vonar starfsfólk Laugarsels að börn og fjölskyldur þeirra hafi það allra best í sumarfríinu ;)

25.6.2010

Myndirnar komnar inn

Myndirnar úr Náttúruvikunni eru komnar inn í myndaalbúmið!

Kveðja, Sædís
25.6.2010

Sumarfrístund í fullu fjöri

Jæja, þá eru tvær vikur liðnar af sumarstarfinu og hafa þær gengið rosalega vel. Í starfinu hefur ríkt mikil gleði bæði hjá börnum sem og starfsfólki.
 
Líðandi vika er náttúruvika og hafa krakkarnir gert ýmislegt skemmtilegt. Á þriðjudag fórum við í Viðey sem var gífurlegt ævintýri. Á miðvikudag voru svo ólympíuleikar Kringumýrar, en þá hittust börn úr öllum frístundaheimilunum í borgarhlutanum og héldum við saman litla ólympíuleika. Sá dagur hófst í Laugardalnum þar sem við settum met í Hókípókí en yfir 100 börn tóku þátt í því. Svo fórum við í nokkra leiki með fallhlíf og því næst fórum við í skrúðgöngu í gegnum Laugardalinn og enduðum á skólalóð Laugarnesskóla, þar sem leikarnir hófust. Meðal þeirra greina sem börnin gátu tekið þátt í voru stígvélakast, reipitog, hlussubolti og brennó.  Að lokum fengu allir frostpinna og vakti það mikla lukku. Að lokum ber að nefna ferð okkar í Siglunes og Nauthólsvík í gær, fimmtudag, en þar fengu krakkarnir að fara í siglingu á Jónasi feita. Það var ótrúlega gaman, og að því loknu var buslað í Nauthólsvíkinni.
 
Einhverjir tæknilegir örðuleikar gera það að verkum að ekki tekst að setja inn myndir inn á heimasíðuna en við vonum svo sannarlega að það kippist í lag sem fyrst, en við lumum á mörgum skemmtilegum myndum.
 
Kær kveðja, Sædís og Kristín
  Í dag er 29. júlí 2010
<júlí 2010>
mþmffls
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
2345678
Mánaðaryfirlit Vikuyfirlit
Flokkayfirlit Leit
Á DÖFINNI
Engir viðburðir eru skráðir á næstunni