Flugdrekasmiðja Sirkusfjör Bæjarferð 2. Rafræn Sumarvefur
 
11.6.2010

Grill og heimsókn frá Vogaseli

Í dag föstudag grilluðum við pylsur í góða veðrinu, en veðrið lék við okkur í dag.  Við fengum skemmtilega heimsókn frá Sumarfrísund í Vogaseli.  Allir fengu pylsur og djús.  Krakkarnir léku sér úti í góða veðrinu það var frjálst úti, börnin í Vogaseli skemmtu sér vel á útisvæðinu, farið var m.a í einakrónu, einnig var kastali á Hvassó lóðinni mjög vinsæll hjá börnunum í Vogaseli þar sem þau höfðu aldrei leikið sér í honum áður. Deginum lauk svo með frjálsum leik inni, þeir sem vildu fengu  að horfa á HM  aðrir voru niðri í litla húsinu okkar þar í söngavakeppninsleik.  En allir voru sammála um að dagurinn var góður og skemmtilegur.  Það voru þreytt en ánægð börn sem fóru heim til foreldra sinna að lokinni sumarfrístund þennan daginn.

8.6.2010

Heimsókn í Ármann og útifjör í Laugardalnum

Í dag heimsóktum við fimleika deild Ármanns í Laugardalnum þar sem við vorum í klukkutíma í ýmsum æfingum og leikjum. Við byrjuðum með smá upphitun þar sem við hlupum um og hoppuðum áður en við færðum okkur yfir á trampólínin og hin tækin sem okkur bauðst til að prófa. Við viljum þakka Ármenningum kærlega fyrir frábærar móttökur. Eftir eftir fimleikana löbbuðum við í grasagarðinn þar sem við borðuðum nestið okkar og lékum okkur i orminum og sóluðum okkur í góða veðrinu.

4.6.2010

Bæjarferð í blíðunni

Við fórum í bæjarferð í góða veðrinu í dag þar sem við gáfum öndunum að borða og lékum  og sóluðum okkur í Hljómskálagarðinu. Við urðum hins vegar að fara fyrr en heim en við ætluðum vegna mikills svifryks og héldum okkur innan dyra eftir 3 kaffið. Við tókum nokkrar myndir sem hægt er að sjá hérna á heimasíðunni.

Fleiri fréttir

  Í dag er 29. júlí 2010
<júlí 2010>
mþmffls
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
2345678
Mánaðaryfirlit Vikuyfirlit
Flokkayfirlit Leit
Á DÖFINNI
Engir viðburðir eru skráðir á næstunni