Rafræn Sumarvefur
 
2.7.2010

Vatnsvikan

Þá er vatnsvikunni að ljúka en við höfum ekki fengið allra besta veðrið í vatnsvikunni góðu. En við getum huggað okkur við það að það verður önnur vatnsvika í ágúst og við ætlum að panta gott veður þá.
 
Við þurftum aðeins að breyta út frá dagskrá vegna veðurs og veikinda hjá starfsmönnum en höfum alltaf gert eitthvað skemmtilegt í staðin.
 
Skráningu lýkur fyrir leikjaviku í dag kl 14:00. Dagskrána fyrir leikjavikuna er að finna hér neðar á síðunni.
 
Lokað er í Glaðheimum vikurnar 12.júli -6.ágúst en við opnum aftur 9.ágúst. Opið er í Laugarseli (Laugarnesskóli) fyrir öll börn vikurnar 12. - 16. júlí og 3. - 6. ágúst.
 
Mýa verður komin í sumarfrí þann 5.júlí og kemur aftur til vinnu þann 9.ágúst. Ef erindið er brýnt er hægt að hafa samband við skrifstofu Kringlumýrar í síma 411-5400 og svo minnum við á Glaðheimasímann : 664-7667
29.6.2010

Laus pláss

Enn eru 13 laus pláss á Leikjavikunni okkar, 5-9.júlí. Hægt er að skrá til föstudags 2.júlí en skráningu á námskeiðið lokar kl 14:00 sama dag. Námskeiðin eru fljót að fyllast hjá okkur og til að mynda hefur verið yfirfullt á síðustu 3 námskeið.
 
Skráning fer fram á Rafrænu Reykjavík.
 
Dagskrána fyrir Leikjavikuna er að finna hér neðar á síðunni.
 
Með bestu kveðju,
Mýa

Fleiri fréttir

  Í dag er 29. júlí 2010
<júlí 2010>
mþmffls
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
2345678
Mánaðaryfirlit Vikuyfirlit
Flokkayfirlit Leit
Á DÖFINNI
Engir viðburðir eru skráðir á næstunni