Í Þróttheimum eru starfrækt ólíkir klúbbar og ráð. Boðið er upp á opið starf í bland við ýmiskonar klúbba sem starfa eftir áhugasviði og þörfum þeirra einstaklinga sem sækja staðinn. Þær nefndir, ráð og klúbbar sem eru virkir haustið 2011 eru:
Nemendaráð: Í nemendaráði Þróttheima og Langholtsskóla sitja ellefu meðlimir í 8. 9. og 10. bekk kosnir af samnemendum sínum. Megin hlutverk ráðsins er að skipuleggja félagslíf skólans svo sem böll og aðra viðburði. Halda utan um stærri viðburði Þróttheima og taka þátt í að móta dagskrá félagsmiðstöðvarinnar. Virkja samnemendur í að mæta á viðburði nemendaráðsins og Þróttheima. Hlusta eftir hugmyndum samnemenda og miðla þeim áfram.Vera sýnileg í skólanum og félagsmiðstöðinni. Sitja fundi og fræðslur fyrir nemendaráð og jafnframt sitja í nefndum fyrir nemendaráðið, skólann og Þróttheima. Nemendaráð sækir fundi vikulega í Þróttheimum, fimmtudaga kl. 15:30 en fundina sitja verkefnastjóri Þróttheima ásamt félagsstarfskennurum Langholtsskóla.
DJ ráð: Í DJ-ráði eru 3 einstaklingar í 8. og 10. bekk sem kosnir voru af samnemendum sínum. Hlutverk ráðsins er að mæta á þá nemendaráðsfundi sem DJ-ráðið er boðað á og taka virkan þátt. Sinna almennum DJ-störfum innan Þróttheima og Langholtsskóla. Þetta eru verkefni eins og að gera lagalista, gera óskalagalista og fylgja þeim þemum sem eru á hverju balli fyrir sig. Einnig að hafa þekkingu á græjum Þróttheima og Langholtsskóla.
Tækniráð: Í tækniráði eru 3 einstaklingar í 9. og 10. bekk sem kosnir voru af samnemendunum sínum. Hlutverk ráðsins er að mæta á þá nemendaráðsfundi sem tækniráðið er boðað á og taka virkan þátt. Sinna almennum tæknistörfum í Langholtsskóla og Þróttheimum, eins og að tengja græjur, tengja ljós, leigja græjur ef þarf, ganga frá eftir böll og aðra viðburði. Einnig að hafa þekkingu á græjum Þróttheima og Langholtsskóla.
Árshátíðarnefnd: Í árshátíðarnefnd er fulltrúi úr 8. 9. og 10. bekk sem kosin var af samnemendum sínum. Hlutverk árshátíðarnefndar er að starfar með hinum ráðunum að skipulagi fyrir árshátíð. Vinna að undirbúningi þ.e. undirbýr skreytingar, miða, auglýsingar og fleira fyrir þenna stóra viðburð.
Smjattpattar
Let´s do it
Draugahúsklúbbur
Stelpuklúbbur 8. bekkjar
Hackysakk klúbbur
Strákaklúbbur 8. bekkjar