Starfsfólk Þróttheima

 

 

Inga Lára Björnsdóttir, Verkefnastjóri
Aldur: 26 ára

Fyrri störf: Inga Lára hefur unnið með börnum og unglingum frá því hún var 16 ára, bæði í Sumarbúðunum Ævintýralandi og hjá ÍTR. Hún hóf störf hjá ÍTR sumarið 2005 og hefur síðan unnið í sundlaug Grafarvogs og sem hlutastarfsmaður með námi í félagsmiðstöðinni Nagyn í Húsaskóla og félagsmiðstöðinni Buskanum, Vogaskóla. Önnur hlutastörf eru á bókasafni Verzlunarskóla Íslands, tilsjónarmaður, stuðningsforeldri, umsjónarmaður í Sumarbúðunum Ævintýralandi og margt, margt fleira. Í maí 2010 hóf Inga Lára 100% starf sem frístundaleiðbeinandi í Þróttheimum.

Menntun: Inga Lára er stúdent frá Verzlunarskóla Íslands. Einnig hefur Inga Lára lokið námi frá Háskóla Íslands sem stærðfræðikennari fyrir nemendur á unglingastigi.

Áhugamál: Inga Lára hefur mikinn áhuga á ferðalögum, íþróttum, fólki, snjókasti, fjallgöngum, félagsmálum og svo mörgu öðru. 

Daníel Einarsson, frístundaleiðbeinandi / 100% starfsmaður
Aldur: 24 ára

Fyrri störf: Danni hefur reynslu af því að vinna með börnum og unglingum. Sumarið 2009 vann hann í félagsmiðstöðvahóp í Laugó með unglingahóp og hefur unnið frá því 2009 sem hlutastarfsmaður í Þróttheimum. Hann hefur einnig unnið með börnum og meðal annars unnið á frístundaheimilinu Glaðheimum.

Menntun: Danni er með stúdentspróf frá Menntaskólanum við Sund en þessa dagana er hann í Háskóla Íslands þar sem hann lærir jarðfræði.

Áhugamál: Danni hefur mikinn áhuga á útivist, jaðaríþróttum og almennt öllum leik. Hann hefur einnig gott lag á ljósmyndun og er listrænt þenkjandi. Mætti segja hann gourmet mann því matargerð er honum hugleikin.    

 

 

Viktor Birgisson, frístundaleiðbeinandi / hlutastarfsmaður
Aldur: 23 ára

Fyrri störf: Viktor hefur unnið hjá ÍTR síðan 2008 bæði á Frístundaheimilum og í Félagsmiðstöð. Hann hefur unnið sem hlutastarfsmaður í Þróttheimum frá því 2010.

Menntun: Viktor er með stúdentspróf frá Menntaskólanum við Sund og stundar nú nám í Tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands.

Áhugamál: Viktor er mikill áhugamaður um tónlist. Hann semur sína eigin raftónlist og þegar hann bjó í Svíþjóð sem krakki æfði hann bandý. Hann hefur einnig áhuga á fótbolta og fólki. 
 
 

Katla Guðjónsdóttir, frístundaráðgjafi / hlutastarfsmaður
Aldur: 25 ára

Fyrri störf: Katla hefur starfað hjá ÍTR í næstum 6 ár eða síðan sumarið 2006. Fyrstu þrjú árin í sumarstarfi á aðalskrifstofunni og síðan bæði í sumar og hlutastarfi með skóla.í frístundarheimilinu og félagsmiðstöðinni í unglingadeildinni í Vesturhlíð. Katla er nýr starfsmaður í Þróttheimum en hún hóf störf núna í haust, 2011.

Menntun: Katla er með stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands. BSc í sálfræði frá Southern Wesleyan University (USA) og lýkur MSc í Alþjóðaviðskiptum vorið 2012.

Áhugamál: Katla hefur áhuga á íþróttum, ferðalögum (innan sem utanlands), nýju fólki og menningarheimum, muffinsbakstri og bara lífinu sjálfu.

 


 

 

 







Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit