Um Þróttheima

Félagsmiðstöðin Þróttheimar
Holtavegi 11
104 Reykjavík
 
Sími: 411-5430
GSM: 695-5066/695-5071
 
Netfang: throttheimar@itr.is
Heimasíða: http://www.throttheimar.is
 
Þróttheimar er félagsmiðstöð á vegum SFS, starfrækt af Frístundamiðstöðinni Kringlumýri. Markhópurinn eru börn og unglingar í 5. - 10. bekk.
 
Áhersla er lögð á fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir unglinga í 8. - 10. bekk. Mikil áhersla er lögð á unglingalýðræði og að virkja gesti félagsmiðstöðvarinnar í að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd.
 
Boðið er upp á opið starf og ýmiskonar klúbbar eru starfandi eftir áhugasviði og þörfum þeirra einstaklinga sem sækja staðinn. Þá eru haldnar ýmsar uppákomur og verkefni í samstafi við börn, foreldra, skóla og aðra samstarfsaðila í hverfinu.
 
Að auki er mikil áhersla lögð á fræðslu um ýmis málefni tengdum lífsleikni og má þar nefna fræslu gegn fordómum, forvarnir gegn vímuefnum, stuðningur við jákvæða sjálfsmynd og margt fleira.
 
Einu sinni í viku er boðið uppá opið hús í bland við námskeið fyrir börn í 6. og 7. bekk að loknum skóladegi. Þá er opið hús fyrir 5. bekk annan hvern fimmtudag.

Félagsmiðstöðin er þátttakandi í samstarfi í hverfinu. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf við foreldra/forráðamenn og alla þá aðila sem koma að uppeldismálum í hverfinu. Lögð er mikil áhersla á að félagsmiðstöðin sé sýnileg og opin þeim sem áhuga hafa á að kynna sér starfsemina.
 
Hverfisskóli Þróttheima er Langholtsskóli.







Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit