Skíðaferð í Bláfjöll 21. febrúar
20.02.2012
Þróttheimar ætla í skíðaferð í Bláfjöll þriðjudagskvöldið 21. febrúar klukkan 17:15 - 22:00. Aðeins verður farið ef veður leyfir og ef opið verður í fjallinu. Það mun koma til með að kosta 250 kr í ferðina. Einnig þurfa þáttakendur að greiða sjálfir fyrir aðgang í fjallið (750kr.) og einnig ef leigja á skíða- eða brettabúnað. Við fáum um helmings afslátt í búnaðarleigunni. Skíði/bretti, skór, bindingar og stafi er hægt að leigja á 1700kr. sem er helmingi ódýrara en venjulegt er. Einnig viljum við benda á að aðeins komast 14 með okkur í bílana, en við hvetjum alla sem langar til þess að renna sér með okkur þetta kvöld að komast uppí fjall sjálf. Hægt er að taka rútu upp í Bláfjöll. Nánari upplýsingar um rútuferðir og færð er hægt að finna hér á heimasíðu skíðasvæðanna.
Sjúbb, sjúbb. Hafið samband ef einhverjar spurningar vakna. Munið eftir nesti og auðvitað hjálminum líka.
KOSTAR 250 Í BÍLANA. 750 í fjallið (0 kr í barnabrekkuna) og 1700 ef þið þurfið að leigja (sem er ódýrara en venjulega). Muna nesti og hjálm! :)
Við endurgreiðum 250 krónurnar á morgun ef við förum ekki.