SamFestingurinn - miðasala og aðrar upplýsingar
06.02.2012
Stærsti sameiginlegi atburður allra félagsmiðstöðva á landinu – SamFestingurinn verður haldinn í Laugardalshöll dagana 2. og 3. mars næstkomandi.
Samfestingurinn verður með sama sniði og verið hefur undanfarin ár. Ball/tónleikar verða á föstudagskvöldinu frá kl. 19-23 og Söngkeppnin á laugardeginum frá kl. 13-16. Keppnin verður sýnd í beinni útsendingu á RÚV.
Í dag fór starfsfólk Þróttheima og heimsótti alla bekki í unglingadeild Langholtsskóla þar sem fyrirkomulag miðasölunnar var kynnt og fengu þeir sem hafa áhuga á að fara á SamFestinginn að skrá sig. Miðasalan fer þannig fram að 10. bekkur er í forgang, síðan 9. bekkur og þá 8. bekkur. Miðinn á hátíðina kostar 3500 krónur og fengu Þróttheimar 60 miða.
Á morgun verður listi yfir þá sem fá úthlutað miða birtur, bæði í skólanum og á heimasíða Þróttheima (www.throttheimar.is). Þeir sem fá miða þurfa að greiða fyrir hann annað kvöld, þ.e. fyrir klukkan 22:00 þriðjudaginn 7. febrúar. Ógreiddir miðar ganga til þeirra sem eru næstir á listta.
Athugið að þegar þeir sem hafa áhuga á að fara í 10. bekk eru búnir að borga er dregið um næsta 9. bekking á lista og svo framvegis. Þetta er svipað fyrirkomulag og var þegar miðasalan á undankeppni Skrekks fór fram.
Ef þið hafið einhverjar spurningar þá skuluð þið ekki hika við að hafa samband við okkur hér í Þróttheimum.