Fréttir úr Þróttheimum, Ofurmannabikar, og Söngkeppni Kringlumýrar
02.02.2012
Það hefur allt verið á fullu í Þróttheimum síðustu vikur. Hópur Unglinga tók þátt í Ofurmannakeppni Reykjavík International Games fyrir hönd Þróttheima og gerðu sér lítið fyrir og komu heim með stærðarinnar bikar. Krakkarnir mættu til keppni á laugardegi í Laugardalslaugina og kepptu í allskyns óvenjulegum keppnisgreinum eins og reiptogi á fleka, koddaslag, ísbaði, og öðrum greinum. Eftir keppnina var sundlaugarpartý þar sem enginn annar en Friðrik Dór og Dj. Birgiss sáu um partýtóna og héldu uppi stuðinu. Í dag (fimmtudaginn 2. febrúar) verður verðlaunaafhending í Þróttheimum og eru þáttakendur hvattir til þess að koma í Þróttheima klukkan fjögur (kl. 16:00) og vera viðstödd við afhendinguna.
Söngkeppni Kringlumýrar var haldinn föstudaginn 27. janúar í síðustu viku þar sem þrjú atriði kepptu fyrir Þróttheima. Kjartan Þórðarsson bræddi hjörtu áhorfenda þegar hann flutti fallegt lag og spilaði á gítar. Rannveig Íva, Hera Rán, og Hrafnhildur Magnea sungu hjartnæmt lag eftir Avril Lavigne en Sæmundur íslensku kennari í Langholtsskóla þýddi textann. Með stelpunum spiluðu þeir Alexis Örn, Davíð Goði og Logi undir á hljóðfæri. Nicharee Phoemphian (Móa) söng flott og kraftmikið lag stakri snilld. Þetta var hörð keppni í ár og alls voru 24 atriði sem tóku þátt í keppninni. Engin af atriðinum frá Þróttheimum. Þau sem keppti fyrir hönd okkar stóðu sig frábærlega og við erum afar stolt af þeim og eiga þau hrós skilið fyrir frábæra frammistöðu. Það er alltaf næsta ár :)
Dagskráin fyrir febrúar birtist von bráðar. Það er margt framundan hjá okkur þ.á.m. Fimman sem er sameiginlegt ball í Réttarholtsskóla. Ballið sameinar fimm skóla úr hverfinu þ.e. Langholtsskóla, Laugalækjaskóla, Vogaskóla, Réttarholtsskóla, og Háaleitisskóla. Ballið er haldið 8. febrúar.
Hafið það sem allra best, kveðja Þróttheimar