Fréttir og tilkynningar

  
Skíða- og brettaferð Þróttheima var æðisleg! | 19.03.2012

Þróttheimar fóru í skíðaferð á Dalvík dagana 9. - 11. mars. Óhætt er að segja að ferðin hafi tekist afar vel og að allir hafi skemmt sér einstaklega vel. Ferðalangarnir voru algjörlega til fyrirmyndar alla ferðina og gerðu þessa ferð ógleymanlega.

  
Skíða- og brettaferð Þróttheima er um helgina | 08.03.2012

Jæja gott fólk þá er komið að því. Skíða- og brettaferð Þróttheima er um helgina. Við ætlum að fara í heimsókn á Dalvík núna um helgina og kenna Dalvíkurbúum hvernig á að renna sér á snjóbretti og á skíðum.

  
Skíða- og brettaferðarfarar ATH! skila þarf inn pöntun í dag. | 05.03.2012

Vonandi hefur fjáröflunin gengið vel. Skíða- og brettaferðarkrakkar ATH!! Þið verður að koma í dag í Þróttheima milli 2 og 5 og skila inn pöntun svo að við getum klárað þetta sem fyrst. Ekki verður hægt að skila inn fjáröflunarpöntun eftir daginn í dag.

  
SamFestingurinn er á morgun | 01.03.2012

Þá er komið að því. SamFestingurinn er á morgun föstudaginn 2. mars í Laugardalshöllinni. Þeir unglingar sem eru að fara með Þróttheimum á hátíðina eiga að mæta í Þróttheima klukkan 17. Ætlast er til þess að allir verði búnir að borða vel og klædd eftir settum reglum.

  
Vikan í Þróttheimum | 28.02.2012

Margt spennandi og skemmtilegt að gerast í Þróttheimum í vikunni. Draugahús, Samfestingurinn, pönnukökubakstur og fleira.

  
Öskudags-KARAOKE í kvöld | 22.02.2012

Komið í búning og takið lagið og fáið glaðning. Það verður hress stemmning í Þróttheimum í kvöld, alvöru öskudagsgleði. Hvetjum alla til þess að mæta í búning eða með öskupoka og taka þátt í gleðinni með okkur.

  
Öskudags Fáránleikar 6. og 7. bekkjar | 22.02.2012

Það verður öskudagsgleði fyrir 6. og 7. bekk í Þróttheimum í dag. Við ætlum að fara í skemmtilega og skrýtna leiki og enda öskudaginn saman. Endilega hvetjið krakkana og hvort annað til þess að kíkja við í Þróttheimum á milli 5 og 7 á leið heim úr sníkjuleiðangrinum.

  
Skíðaferð í Bláfjöll 21. febrúar | 20.02.2012

Þróttheimar ætla í skíðaferð í Bláfjöll þriðjudagskvöldið 21. febrúar klukkan 17:15 - 22:00. Aðeins verður farið ef veður leyfir og ef opið verður í fjallinu.

  
Fullt af nýjum myndum | 14.02.2012

Hellingur af nýjum myndum voru að rata inn á myndasíðuna okkar. Þar á meðal eru stórskemmtilegar myndir af Fimmunni sem var haldin í síðustu viku. Kíkið á þetta.

  
POPPHús og skil á leyfisbréfi fyrir SamFestinginn í kvöld | 14.02.2012

ATH!!! mjög mikilvægt. Í kvöld 14. febrúar á degi Valentínusar á að vera búið að skila leyfisbréfi fyrir SamFestinginn 2012. Hægt er að koma í Þróttheima í allan dag frá 12 til 22 og skila leyfisbréfinu sínu. Í kvöld verður opið POPPHÚS sem er ekkert venjulegt Opið Hús því heyrst hefur að Katla í Þr...







Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit