Fréttir og tilkynningar

  
GHOST BUSTERS | 01.12.2010

Í kvöld, miðvikudaginn 1. desember, verður Ghost Busters sýnd. Endilega kíkið við og upplifið spennuna fyrir draugahúsinu á föstudaginn.

  
Fáránleikar Þróttheima | 25.11.2010

Í gær, miðvikudaginn 25. nóvember hélt nemendaráð Langholtsskóla Fáránleika í Þróttheimum. Tveir keppendur voru saman í liði og átti annar að þykjast vera handalaus á meðan hinn þóttist verka sjónlaus.

  
Brjóstsykursgerð fyrir 8. bekk | 22.11.2010

Í kvöld, mánudaginn 22. nóvember bjóðum við 8. bekk að gera brjóstsykur í Þróttheimum. Húsið opnar kl: 19:30 og gildir sú regla að fyrstir sem koma og skrá sig geta gert brjóstsykur. Alls eru 32 sem geta gert brjóstsykur í kvöld.

  
Stíll | 19.11.2010

Laugardaginn 20. nóvember munu fjórar 10. bekkjarstúlkur keppa í Stíl. Hátíðin fer fram í Vetrargarðinum og má sjá dagskrána á heimasíðu Samfés.

  
Opið hús með Laugó | 19.11.2010

Í kvöld er opið hús með Laugó. Húsið opnar klukkan 19:30 og boðið verður upp á heitt kakó og kökur.

  
Rímnaflæði | 19.11.2010

Í kvöld munu Stebbi og Óðinn keppa í Rímnaflæði fyrir hönd Laugardals! ;) Rímnaflæði er haldið í Miðbergi og þurfa þeir sem hafa keypt miða að mæta í Þróttheima klukkan 19:00 - stundvíslega með leyfisbréf.

  
Óvissuferð 10. bekkjar | 12.11.2010

Hluti úr 10. bekk í Langholtsskóla hélt í skemmtilega óvissuferð síðastliðinn föstudag,5. nóvember. 16 unglingar skráðu sig og komu með ásamt fjórum starfsmönnum félagsmiðstöðvarinnar Þróttheima; Stínu, Ingu Láru, Viktori og Danna.

  
Rímnaflæði föstudaginn 19. nóvember | 11.11.2010

Föstudaginn 19. nóvember verður Rímnaflæði haldið í Miðbergi. Þátttakendur skrá sig fyrir föstudag 12. nóvember. Áhorfendur verða búnir að koma í Þróttheima og kaupa miða fyrir miðvikudaginn 17. nóvember. Fyrstir koma fyrstir fá!

  
Viltu vinna 100 kall? | 05.11.2010

Mánudaginn 8. nóvember verður hin sívinsæla keppni: Viltu vinna 100 kall? Keppnin hefst kl: 20:00 en opið er frá 19:30-22:00.

  
SKREKKUR og bökunarnámskeið fyrir 6. og 7. bekk | 01.11.2010

Í kvöld fer fram undankeppni í Skrekk í Borgarleikhúsinu. Langholtsskóli mun keppa á móti nokkrum öðrum skólum og óskum við þeim góðs gengis. Unglingarnir hafa lagt mikið á sig og æft stíft síðastliðna daga. Atriðið þeirra er afar flott og skemmtilegt!







Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit