Fréttir og tilkynningar

  
Öskudags-KARAOKE í kvöld | 22.02.2012

Komið í búning og takið lagið og fáið glaðning. Það verður hress stemmning í Þróttheimum í kvöld, alvöru öskudagsgleði. Hvetjum alla til þess að mæta í búning eða með öskupoka og taka þátt í gleðinni með okkur.

  
Öskudags Fáránleikar 6. og 7. bekkjar | 22.02.2012

Það verður öskudagsgleði fyrir 6. og 7. bekk í Þróttheimum í dag. Við ætlum að fara í skemmtilega og skrýtna leiki og enda öskudaginn saman. Endilega hvetjið krakkana og hvort annað til þess að kíkja við í Þróttheimum á milli 5 og 7 á leið heim úr sníkjuleiðangrinum.

  
Skíðaferð í Bláfjöll 21. febrúar | 20.02.2012

Þróttheimar ætla í skíðaferð í Bláfjöll þriðjudagskvöldið 21. febrúar klukkan 17:15 - 22:00. Aðeins verður farið ef veður leyfir og ef opið verður í fjallinu.

  
Fullt af nýjum myndum | 14.02.2012

Hellingur af nýjum myndum voru að rata inn á myndasíðuna okkar. Þar á meðal eru stórskemmtilegar myndir af Fimmunni sem var haldin í síðustu viku. Kíkið á þetta.

  
POPPHús og skil á leyfisbréfi fyrir SamFestinginn í kvöld | 14.02.2012

ATH!!! mjög mikilvægt. Í kvöld 14. febrúar á degi Valentínusar á að vera búið að skila leyfisbréfi fyrir SamFestinginn 2012. Hægt er að koma í Þróttheima í allan dag frá 12 til 22 og skila leyfisbréfinu sínu. Í kvöld verður opið POPPHÚS sem er ekkert venjulegt Opið Hús því heyrst hefur að Katla í Þr...

  
Kærleikskvöld í Þróttheimum | 09.02.2012

Föstudaginn 10. febrúar verður haldið Kærleikskvöld í Þróttheimum fyrir 8. - 10. bekk. Gleði og kærleikur verður við völd allt kvöldið á meðan við gæðum okkur á´súkkulaði húðuðum ávöxtum og búum til vinabönd, kærleikskort og margt fleira. Förum í helgarfrí með gleði í hjarta.

  
Miðasala á SamFestinginn - 9. bekkur | 09.02.2012

Hér fylgir listi yfir þá 9. bekkinga sem eiga frátekinn miða á SamFestinginn í ár. Þau sem eru á þessum lista hafa daginn í dag til þess að greiða miðann sinn (3500 kr). Greiða þarf miðann fyrir klukkan 17 í þróttheimum í dag.

  
SamFestingurinn - Miðasala í kvöld fyrir 10. bekk | 07.02.2012

Hér fylgir listi yfir þá 10. bekkinga sem eiga frátekinn miða á SamFestinginn í ár. Þau sem eru á þessum lista hafa kvöldið í kvöld til þess að greiða miðann sinn (3500 kr). Tekið er á móti greiðslu í Þróttheimum í kvöld á milli 19:30 og 22:00.

  
SamFestingurinn - miðasala og aðrar upplýsingar | 06.02.2012

Árlega Samfés hátíðin ber nafnið SamFestingurinn í ár. Miðasala á hátíðina hefst í þessari viku. Hér má lesa upplýsingar um SamFestinginn og miðasöluna.

  
Fréttir úr Þróttheimum, Ofurmannabikar, og Söngkeppni Kringlumýrar | 02.02.2012

Það hefur allt verið á fullu í Þróttheimum síðustu vikur. Hópur Unglinga tók þátt í Ofurmannakeppni RIG fyrir hönd Þróttheima og gerðu sér lítið fyrir og komu heim með stærðarinnar bikar. Söngkeppni Kringlumýrar var í síðustu viku þar sem þrjú atriði kepptu fyrir Þróttheima.







Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit