Framundan
20.02.2012
Mikill ærslatími er nú að baki í Tónabæ, Draugahúsið hrellti ófáa unglinga eftir dansgleðina í Réttó.
Fimmuballið vakti mikla lukku og heppnaðist með eindæmum vel og voru starfsmenn Kringlumýrar sammála um að þetta skyldi endurtaka sig að ári. Langflestir gengu úr sveittir eftir stanslausan dans með bros út að eyrum. Myndir af Fimmunni má sjá á myndasíðunni okkar, og einnig eru fleiri myndir á heimasíðu Buskans, kringlumyri.is/desktopdefault.aspx/tabid-373/
Draugahús Tónabæjar var svo haldið 10. febrúar og að þessu sinni fór það fram í kjallara Háaleitisskóla við Álftamýri. Tóku einir 13 unglingar þátt í uppsetningunni og léku einnig í því.
Framundan er svo Samfés ballið og söngkeppnin, eða SamFestingurinn; stærsti sameiginlegi viðburður allra félagsmiðstöðva á landinu. Hann verður haldinn í Laugardalshöll 2. og 3. mars næstkomandi. Ballið/tónleikarnir verða á föstudagskvöldinu frá kl. 19-23 og Söngkeppnin á laugardeginum frá kl. 13-16. Keppnin verður sýnd í beinni útsendingu á RÚV. Hafa þeir unglingar sem hyggjast mæta nú þegar tryggt sér miða. Við bendum foreldrum á að kynna sér fatareglur sem og annað skipulag hátíðarinnar á www.samfes.is .
Vikan í Tónabæ verður svohljóðandi, Rice Crispies og Kornflexkökusprengja á þriðjudagskvöldið, og Öskudagsfjör á miðvikudaginn, bæði fyrir 6. og 7. bekk og svo 8. til 10. um kvöldið. Brjóstsykursgerð fyrir 9. bekk verður á dagopnun á fimmtudaginn.