Fréttir og tilkynningar

Söngkeppni Kringlumýrar og fleira

23.01.2012

Spennan liggur í loftinu og hafa unglingarnir staðið í ströngum æfingum á söngatriðum sem þau ætla að flytja fyrir okkur á föstudaginn þegar árleg Söngkeppni Kringlumýrar fer fram. Keppnin er undankeppni fyrir Söngkeppni Samfés sem fer fram í mars. Frá Kringlumýri fara tvö atriði og er því spennandi að sjá hvað af þeim 23 atriðum sem núna eru skráð í keppni fer áfram.

Að þessu sinni verður keppnin haldin í Laugalækjarskóla, og opnar húsið kl 18.30 og keppnin hefst á slaginu 19.00. Miðaverð eru litlar 400 kr. og fá allir far með rútum heim.

 

En hvað gamla góða Tónabæ varðar þá ætlum við að halda generalprufu fyrir þau atriði sem taka þátt fyrir hönd Tónó á þriðjudaginn, og til að losa um spennuna og röddina förum við í feluleik beint á eftir.

Á miðvikudaginn er síðan spilakvöld í Álftó og er Hvassó að sjálfsögðu innilega boðið, hvað er betra en að sameina krafta ungmenna hins nýja Háaleitisskóla, með nokkrum borðspilum og gleði.

Dagskráin fyrir 6. og 7. bekk kemur inn næstu daga.




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit