Fréttir og tilkynningar

Dansæði í Tónabæ

16.01.2012

Sing Star Dance hefur notið gífurlegra vinsælda í Tónabæ upp á síðkastið. Keppendur fá að spreyta sig í söng og dansi, í pörum eða ein og óstudd. Á þriðjudaginn verður leikurinn vinsæli aðalnúmer kvöldsins og svo á miðvikudagskvöldið fá keppendur í Söngkeppni Kringlumýrar alla athygli okkar og við munum hjálpa hvort öðru við útfærslu og faglegar ráðleggingar í söng. Söngkeppnin fer svo fram í Laugalækjarskóla þann 27. janúar.

Tilraunakvöldið vakti mikla lukku viðstaddra og þótti með ólíkindum að mjólk, piparkökur og Swiss Miss kakó skyldi bragðast vel saman úr blandara. Einnig smökkuðu viðstaddir exótíska ávexti og blésu upp blöðru með matarsóda og ediki. Upp komu margar nýjar hugmyndir að tilraunum og verður að segjast að kvöld sem slíkt hljóti að endurtakast.

10. bekkingar belgdu sig síðan út af brjóstsykri á fimmtudaginn og fá þeir sem heima sátu að spreyta sig í næstu viku, og þurfa því ekki að örvænta. Foreldrar eru hvattir til að smakka á þessum guðaveigum og muna að bursta tennurnar eftirá.




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit