Fréttir og tilkynningar

Vikan framundan

09.01.2012

Örlitlar breytingar hafa átt sér stað í Tónabæ. Sunna var kvödd með virktum á miðvikudaginn en hún hélt út yfir höfin á vit nýrra ævintýra. Hennar verður sárt saknað héðan úr höfuðstöðvunum og við vonum að hún búi vel að reynslunni héðan þegar hún heldur til Noregs. Við óskum henni velgengni í lífi og starfi þarna fyrir austan!

Hins vegar er ýmislegt á döfinni hérna í Tónabæ í vikunni:

Á þriðjudagskvöldið er Youtube kvöld, þar sem unglingarnir fá að sýna hvort öðru fyndustu og skrýtnustu myndræmur sem þar finnast. Samræður katta eða pönduhnerrar, við viljum sjá þetta allt og helst fá harðsperrur af hlátri.

Á miðvikudaginn ætlum við að hafa tilraunakvöld, og ekki má gleyma föstudeginum þrettánda sem tekur á móti okkur með allri sinni hjátrú, við höfum augun opin fyrir alls kyns skrítnum hlutum og yfirnáttúruleika!

Brjóstsykursgerðin sívinsæla mætir á nýjan leik og núna verður hún á fimmtudaginn, hefst þessi törn á aldursforsetunum í 10. bekk.

Opnunartíminn á daginn í Tónabæ er örlítið breyttur. Þá ber helst að nefna opnunartíma fyrir 6. og 7. bekk, en hann verður síðar á daginn. Sjá hér til hægri undir Opnunartími.




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit