Fréttir og tilkynningar
Skrekkur | 01.11.2010
Mánudaginn 1. nóvember keppir Álftamýrarskóli í Skrekk og þriðjudaginn 2. nóvember keppir Hvassaleitisskóli.
Félagasmiðstöðvadagurinn | 22.10.2010
Félagsmiðstöðin Tónabær býður fjölskyldur í hverfinu velkomna í heimsókn á félagsmiðstöðvadaginn, til þess að kynna það fjölbreytta og skemmtilega starf sem félagsmiðstöðin býður uppá fyrir börn og unglinga í 5. - 10. bekk Álfamýrar- og Hvassaleitisskóla.
Ljótufatadagur | 21.10.2010
Jæja! Dragið nú fram gömlu buxnadragtina hennar ömmu því það er komið að ljótufatadegi (eða kvöldi öllu heldur) í Tónabæ!
Fussballmót | 20.10.2010
Hið árlega fussballmót verður haldið í Tónabæ í kvöld, miðvikudaginn 20. október. Tveir og tveir eru í liði og það eru vegleg verðlaun ásamt mynd upp á Wall of fame.
9. bekkjarkvöld | 15.10.2010
Undanfarin ár höfum við haft það þannig að einu sinni á önn erum við með árgangakvöld í félagsmiðstöðinni. Næskomandi mánudag verðum við með eitt slíkt í Tónabæ. En þá fá einungis 9. bekkingar að mætaþ. Húsið opnar kl. 19:30 og er opið til kl. 22:00.
Hvassó ball og Álftó boðið | 13.10.2010
Nemendaráðið í Hvassaleitisskóla tók þá ákvörðun að halda Svart-hvítt ball miðvikudaginn 13. október frá kl. 19:30 til 22:00. Álftamýrarskólakrökkum er boðið á ballið.
Mætið öll og skemmtið ykkur vel.
Simpsonskvöld | 11.10.2010
Mánudaginn 11. október kl. 19:30 ætlum við í Tónabæ að halda Simpsson maraþon.
Sundlaugarpartí! | 05.10.2010
Föstudaginn 8. október munu félagsmiðstöðvarnar í Kringlumýri halda sameiginlegt sundlaugapartý í Sundhöll Reykjavíkur. Sundhöllin verður lokuð almenningi þetta kvöld og bjóðum við 27 manns frá hverri félagsmiðstöð að mæta.
Amazing Race | 28.09.2010
Síðastliðinn föstudag var hin árlega Amazing Race keppni Tónabæjar haldin. Sigurveigararnir frá því í fyrra, Biggi, Baddi og Benni, unnu keppnina aftur í ár ásamt Frey, en hann bættist í liðið þeirra. Viljum við óska þeim til hamingju með það.