Laugó er félagsmiðstöð með fjölbreytt frítímastarf fyrir nemendur í Laugalækjar- og Laugarnesskóla og í vetur ætlum við að bjóða 5. og 6. bekk velkominn til okkar annan hvern mánudag, milli kl: 14:30 og 16:45.
Í Laugó hitta krakkarnir bekkjarfélaga sína og fá tækifæri til að kynnast nýjum krökkum, auk þess sem þau kynnast Laugó og starfsemi okkar. Félagsstarfið er öllum að kostnaðarlausu.
Ýmislegt er hægt að bralla í Laugó. Hægt er að leika sér í borðspilum, borðtennis, föndri, tölvuleikjum, sinnt heimalærdómi og ýmsu fleiru. Stundum er í boði að baka, elda, stensla á boli eða búa til brjóstsykur. Alltaf er hægt að hlusta á góða tónlist og dansa.
Félagsmiðstöðin er staðsett inni í Laugalækjarskóla við Leirulæk 2 og gengið er inn í félagsmiðstöðina bakvið skólann.
Dagskráin er auglýst í Laugarnesskóla og hér á heimasíðu Laugó.
Starfsmenn eru: Þorbjörg Una Þorgilsdóttir, Ingunn Guðmundsdóttir, Erling Þór Birgisson og Sandra Gísladóttir.