7. bekkur í Laugó

Laugó er félagsmiðstöð með fjölbreytt frítímastarf fyrir nemendur í Laugalækjar- og Laugarnesskóla og í vetur ætlum við að bjóða 7. bekk velkominn til okkar á miðvikudögum, milli kl: 16:30 og 18:45.

Í Laugó hitta krakkarnir bekkjarfélaga sína og fá tækifæri til að kynnast nýjum krökkum, auk þess sem þau kynnast Laugó og starfsemi félagsmiðstöðvarinnar. Félagsstarfið er öllum að kostnaðarlausu.

Ýmislegt er hægt að bralla í Laugó. Hægt er að leika sér í borðspilum, borðtennis, billiard, föndri, tölvuleikjum, sinnt heimalærdómi og ýmsu fleiru. Stundum er í boði að baka, elda, stensla á boli eða búa til brjóstsykur. Alltaf er hægt að hlusta á góða tónlist og dansa.

7. bekkur hefur kosið sér miðstigsráð þar sem tveir fulltrúar úr hverjum bekk eiga sæti. Miðstigsráð tekur þátt í að skipuleggja starfið fyrir miðstig, auglýsa, hjálpa til á viðburðum og fleira.

Félagsmiðstöðin er staðsett inni í Laugalækjarskóla við Leirulæk 2 og gengið er inn í félagsmiðstöðina bakvið skólann.

Dagskráin er auglýst á göngum Laugalækjarskóla og hér á heimasíðu Laugó.

Starfsmenn eru: Þorbjörg Una Þorgilsdóttir, Ingunn Guðmundsdóttir, Haraldur Geir Þorsteinsson og Erling Þór Birgisson.







Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit