Um Laugó

Félagsmiðstöðin Laugó

Laugalækjarskóla
105 Reykjavík
Sími: 517-2811
Netfang: laugo@itr.is
 

Laugó er félagsmiðstöð á vegum ÍTR, starfrækt af Frístundamiðstöðinni Kringlumýri.
Markhópurinn eru börn og unglingar í 5. - 10. bekk.
 
Áhersla er lögð á fjölbreytt, skemmtilegt og innihaldsríkt starf fyrir unglinga í 8. - 10. bekk. Mikil áhersla er lögð á unglingalýðræði og að virkja gesti félagsmiðstöðvarinnar í að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd.
 
Boðið er upp á opið starf og ýmiskonar klúbbar eru starfandi eftir áhugasviði og þörfum þeirra einstaklinga sem sækja staðinn. Þá eru haldnar ýmsar uppákomur og verkefni í samstafi við börn, foreldra, skóla og aðra samstarfsaðila í hverfinu.
 
Að auki er mikil áhersla lögð á fræðslu um ýmis málefni tengdum lífsleikni og má þar nefna fræðslu gegn fordómum, forvarnir gegn vímuefnum, stuðningur við jákvæða sjálfsmynd og margt fleira.
 
Einu sinni í viku er boðið uppá opið hús og smiðjur fyrir börn í 7. bekk að loknum skóladegi. Þá er opið hús fyrir 5. og 6. bekk annan hvern fimmtudag.
 
Félagsmiðstöðin er þátttakandi í samstarfi í hverfinu og hefur m.a. tekið þátt í hverfishátíðinni Laugarnes á ljúfu nótunum undanfarin 2 ár. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf við foreldra/forráðamenn og alla þá aðila sem koma að uppeldismálum í hverfinu. Lögð er mikil áhersla á að félagsmiðstöðin sé sýnileg og opin þeim sem áhuga hafa á að kynna sér starfsemina.
 
Hverfisskólar tengdir Laugó eru Laugalækarskóli og Laugarnesskóli.







Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit