Fréttir og tilkynningar

Gistnótt Laugó 2012

17.02.2012

Áformað er að halda gistinótt í Laugó fimmtudaginn 23. febrúar fyrir nemendur í 10. bekk Laugalækjarskóla. Aðeins verður 55 unglingum leyft að skrá sig og verða 4 starfsmenn Laugó á vakt. Skráning verður í Laugó þriðjudaginn 21. febrúar milli 14:00-17:00 og 19:30-22:00.

Gistinóttin kostar 500 krónur, innifalið í því er pizza og allur efniskostnaður í smiðjur. Drykkir eru ekki innifaldir og vinsamlegast athugið að orkudrykkir eru ekki leyfðir. Eftir kl. 22:00 verður unglingunum ekki hleypt út úr Laugó fyrr en morguninn eftir. Þannig að það er mikilvægt að þeir séu komnir með allt það sem þeir ætla að hafa með sér fyrir þann tíma.

Dagskrá er enn í mótun í samráði við þá 10.bekkinga sem sitja í nemendaráði en hér er uppkast að dagskrá:

- 21:00-22:00  Mæting í Laugó
- 22:00-22:30  Húsinu lokað og svefnaðstaða undirbúin
- 22:30-00:00  Farið yfir dagskrá, pizza og skráning í smiðjur
- 00:00 -03:00  Smiðjur hefjast
(karókí, brjóstsykursgerð, fifamót, spurningapottur, kökubakstur, yoga og slökun)
- 03:00    Ró komin á – nokkrar bíómyndir rúlla í 3 stofum
- 07:30    Frágangur á húsi og tiltekt – allir taka þátt
- 08:00    Heimför

Ef einhverjar spurningar vakna varðandi gistinóttina endilega hafið samband við starfsfólk Laugó í síma 517-2811 eða 664-7631.




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit