Fréttir og tilkynningar

SamFestingurinn - miðasala og aðrar upplýsingar

06.02.2012

Stærsti sameiginlegi atburður allra félagsmiðstöðva á landinu - SamFestingurinn verður haldinn í Laugardalshöll dagana 2. og 3. mars næstkomandi.

Samfestingurinn verður með sama sniði og verið hefur undanfarin ár. Ball/tónleikar verða á föstudagskvöldinu frá kl. 19-23 og Söngkeppnin á laugardeginum frá kl. 13-16. Keppnin verður sýnd í beinni útsendingu á RÚV.

Í dag var fyrirkomulag miðasölunnar kynnt fyrir nemendum af umsjónarkennurum og þeir sem höfðu áhuga á að fá miða merktu við sig. Eins og undanfarin ár eru 10. bekkingar í forgang, svo 9. bekkingar og loks 8. bekkingar svo á þremur árum fá allir jöfn tækifæri á að nálgast miða.

Á morgun, þriðjudag, verður listi yfir þá 10. bekkinga sem fá úthlutaða miða birtur. Þeir sem fá miða þurfa að greiða fyrir hann milli 14:00 og 17:00 eða 19:30 og 22:00 annað kvöld, þ.e. fyrir klukkan 22:00 þriðjudaginn 7. febrúar. Ógreiddir miðar ganga til þeirra sem eru næstir á lista sem eru þá fyrst 9. bekkingar og svo 8. bekkingar.

Miðinn á hátíðina kostar 3500 krónur og fékk Laugó 75 miða.




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit