Söngkeppni Kringlumýrar
23.01.2012
Það er mikil spenna í Laugó þessa dagana því á föstudaginn verður Söngkeppni Kringlumýrar. Það er met þátttaka frá Laugó þetta árið en 7 atriði keppa fyrir Laugó hönd en alls keppa um 22 atriði. Keppnin verður haldin í Laugó þetta árið og byrjar keppnin stundvíslega klukkan 19:00 en húsið opnar klukkan 18:30. Tvö bestu atriðin keppa svo fyrir hönd Kringlumýrar í söngkeppni Samfés 4. mars næstkomandi. Miðasala fer fram á þriðjudag klukkan 14:00 og kostar 400 kr inn. Á morgun þriðjudag verðum við með NBA 2K11 mót og á miðvikudaginn verður hárgreiðslukeppni Evu, Sólar og Maríu, það verður forvitnilegt að sjá hárdýrðina það kvöldið.