House of feelings og dagskrá vikunnar!
16.01.2012
Síðasta föstudag prufuðum við nokkuð sem heitir „House of Feelings“ eða hús tilfinninganna. Það gengur út á að krakkarnir eru með bundið fyrir augun og eru leiddir eitt og eitt í gegnum salinn þar sem þau fá að prufa ýmsa hluti. Til dæmis dýfa löppunum í kalt vatn, labba á kornflexi, hlusta á tónlist, fá súran brjóstsykur, dýfa hendinni í jelló, labba á púðum og margt annað sem örvar skynfærin. Aðeins tveir til þrír voru inn í salnum í einu og allir voru leiddir í gegnum þrautirnar. Við fengum fjóra krakka í 8.bekk til þess að hjálpa okkur með viðburðinn, en það voru þau Selma, Sif, Agnar og Valgeir. Þau stóðu sig frábærlega bæði í skipulagningu og á kvöldinu sjálfu. Eftir að allir voru búnir að labba einu sinni í gegn söfnuðum við krökkunum saman inn í sal og leyfðum þeim að sjá þrautirnar og spjölluðum um hvernig þau upplifðu hús tilfinninganna. Um 35 krakkar löbbuðu í gegnum húsið og fannst krökkunum þetta geðveik upplifun. Á morgun (þriðjudag) verðum við með Avatarkvöld, þá ætlum við að sýna myndina inn í sal og gefa krökkunum blátt popp. Á miðvikudaginn sýnum við landsleikinn Ísland – Noregur og styðjum strákana okkar! Fullt að gerast í Laugó um þessar mundir!