Fréttir og tilkynningar

Janúardagskrá!

09.01.2012

Nú er dagskráin komin fyrir janúar mánuð. Það er margt og mikið sem verður um að vera hjá okkur eins og til dæmis Avatarkvöld, 8.bekkjarkvöld, spilakvöld og að sjálfsögðu söngkeppni Kringlumýrar. Það eru nú þegar 4 atriði skráð til leiks fyrir hönd Laugó. Á morgun er sérstök opnun bara fyrir 8.bekk en þá ætlum við að gera brjóstsykra og leyfa krökkunum að njóta alls þess sem hægt er að gera í Laugó. Ef það eru einhverjir 8.bekkingar sem ekki hafa komið í Laugó ennþá þá er um að gera að kíkja við hjá okkur á morgun, húsið opnar klukkan 19:30  - 22:00. Vonandi sjáumst við sem flest!




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit