Fréttir og tilkynningar

 Skartgripagerð. 
Frábær stemning á gistinótt 10. bekkjar! | 07.12.2010

Laugó bauð 10. bekkingum upp á gistinótt frá föstudeginum 3. des. til laugardagsins 4. des. Margt skemmtilegt var á dagskránni m.a. frumsýndu nokkrir 10. bekkingar stuttmynd við mikinn fögnuð.

 Sigurvegararnir á sviði! 
Flemmið 2010, Þorsteinn Eyfjörð og Brynjar Guðlaugsson sigruðu! | 07.12.2010

Flemmið, hæfileikakeppni Laugalækjarskóla var haldið með pompi og prakt miðvikudagskvöldið 1. desember. Nemendur Laugalækjarskóla sýndu og sönnuðu hversu hæfileikaríkir þeir eru með frábærum atriðum!

  
Gistinótt 10. bekkinga | 01.12.2010

Kæra foreldri /forráðamaður. Áformað er að halda gistinótt í Laugó föstudaginn 3. desember fyrir nemendur í 10. bekk Laugalækjarskóla. Aðeins verður 55 unglingum leyft að skrá sig og verða 4 starfsmenn á vakt. Skráning stendur yfir í dag, miðvikudag, til klukkan 22:00.

 Þórður Jörundsson 
Nýr starfsmaður | 24.11.2010

Við bjóðum Þórð Jörundsson hjartanlega velkomin til starfa í Laugó. Þórður ætlar að starfa með okkur fram að áramótum í 10-12 ára starfinu og erum við því orðin þrjú sem sinnum því starfi á þriðjudögum og fimmtudögum.

  
Bingó Bingó Bingó! | 23.11.2010

Miðvikudaginn 24. nóvember verður spilað bingó í Laugó! Veglegir vinningar í boði, spjaldið kostar 0. krónur. Stuðið hefst kl 19.30... Mætum öll!

  
9. bekkjarkvöld í Laugó 22. nóvember! | 22.11.2010

Í kvöld, 22. nóvember verður 9. bekkjarkvöld í Laugó! Á boðstólnum verður m.a. - Kappát - Útileikir - Asnaleikar! Vonumst til að sjá sem flesta!

  
Heimsókn í Þróttheima 19. nóvember 2010 | 19.11.2010

Okkur hefur hlotnast sá heiður að fá heimboð frá vinum okkar í félagsmiðstöðinni Þróttheimum. Þeir sem ekki fara á Rímnaflæði geta mætt á opið hús í Þróttheimum og haft það helvíti gott!

  
Stíll 2010 í Smáralind | 19.11.2010

Laugardaginn 20. nóvember fer Stíll 2010 fram í Smáralind. Þær Halldóra Ósk, Ronja, Karen Harpa og Stefanía Lára keppa fyrir hönd Laugó í ár.

  
Rímnaflæði 2010 | 19.11.2010

Í kvöld, föstudagskvöldið 19. nóvember fer Rímnaflæði 2010 fram í Miðbergi í Breiðholtinu. Gréta Sóley og Fjóla úr 9. bekk munu taka þátt fyrir hönd Laugó og óskum við þeim góðs gengis!

 Glæsilegt atriði Laugó 
Laugalækjarskóli í 3. sæti í Skrekk 2010 | 18.11.2010

Laugalækjarskóli náði frábærum árangri í Skrekk mánudagskvöldið 15. nóvember í Borgarleikhúsinu. Atriðið Lísa í Undralandi vakti verðskuldaða athygli og endaði í hópi þeirra allra bestu!







Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit