Nefndir-klúbbar-ráð

Í Bústöðum hafa í gegnum tíðina verðir starfræktir hinir ýmsustu nefndir og klúbbar. Það verður engin undantekning á því í vetur en það á allt eftir að mótast eftir áhuga ykkar unglinganna ...
 
Svo sem lög gera ráð fyrir starfar nemendafélag í Réttarholtsskóla.  Félagið kýs sér stjórn sem skipuleggur félagslíf innan skólans og stjórnarmenn eru talsmenn nemenda. Þeir nemendur sem taka að sér þessi ábyrgðarmiklu störf gegna mikilvægu hlutverki í nemendahópnum og vinna óeigingjarnt starf í þágu nemenda í frítíma sínum. Stjórn Nemendafélagsins vinnur undir leiðsögn félagsstarfskennara Réttó og verkefnisstjóra Bústaða.

Stjórn nemendafélags Réttarholtsskóla 2010-2011

Stjórn nemendafélags Réttarholtsskóla 2010-2011.
Efri röð: Esther Jónsdóttir, Einar Baldvin Baldvinsson, Sigríður Arna Lund, Lára Theódóra Kristjánsdóttir, Soffía Gunnarsdóttir, Karólína Ólafsdóttir. Neðri röð: Sandra Smáradóttir, Guðfinnur Geirdal, Ólafur Kári Ragnarsson og Hanna María Geirdal, formaður. 

Í vetur sjá félagsstarfskennari Réttó og verkefnisstjóri Bústaða einnig um félagsmálafræði. Félagsmálafræði skipuleggur dagskrá, stærri atburði og margt fleira í Bústöðum og Réttó í samstarfi við nemendafélag skólans.
 
Í hverfinu eru starfrækt ungmennaráð Kringluhverfis og Laugardals. Ráðið er fyrir alla áhugasama um málefni ungs fólks sem eru yngri en 18 ára. Umsjónarmenn ungmennaráðs eru Andri verkefnastjóri í Bústöðum og Svavar Knútur frístundaráðgjafi í frístundamiðstöð Laugardals- og Háaleitis.






Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit