Fréttir og tilkynningar

Fimman: skemmtilegasta ballið

15.02.2012

Sameiginlega ball Kringlumýrar, Fimman, var haldið í síðustu viku í Réttarholtsskóla og skemmtu gestir sér mjög vel. Orðið er á götunni að ballið hafi verið það skemmtilegasta á þessu skólaári og munum við án efa hafa þetta ball sem árlegan viðburð innan Kringlumýrar.  Myndir frá ballinu má sjá á vefsíðu Þróttheima: http://www.kringlumyri.is/desktopdefault.aspx/tabid-442/832_read-2169/822_view-541/

Við í Bústöðum ætlum að fylgjast vel með Meistaradeild Evrópu og munum við sýna leikina á þriðjudags- og miðvikudagsopnunum. Fjörið hefst í kvöld, miðvikudaginn 15. febrúar, og ætlum við að bjóða upp á grillaðar pylsur og djús. Áfram heldur svo fótboltafjörið því á föstudaginn frá 14:00-17:00 ætlum við í Bústöðum að etja kappi við Buskann í FIFA2012, nánar auglýst síðar.

Miðasala á SamFestinginn hefur gengið mjög vel og fengu allir í 10. bekk miða sem vildu. SamFestingurinn fer fram 2. og 3. mars en á föstudagskvöldinu fer fram risa ball og mun m.a. Páll Óskar troða upp ásamt fleirum góðum. Hljómsveitin White Signal mun einnig troða upp með Rétthyltningnum Guðrúnu Ólafs í fararbroddi og erum við einkar ánægð með það. Á laugardeginum fer svo fram söngkeppni Samfés og frá Kringlumýri sendum við tvö fanta flott söngatriði. Við mætum að sjálfsögðu og styðjum okkar fólk.

Við í Bústöðum óskum ykkur góðrar viku og hlökkum til að sjá ykkur J




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit