Febrúarfjör
06.02.2012
Margt hefur á daga okkar drifið í Bústöðum frá því að nýtt ár gekk í garð. Í janúar fórum við í bíó og sáum myndina 50/50 og voru allir sammála um að þar væri mjög skemmtileg mynd á ferð með góðum boðskap. Við héldum stelpu- og strákakvöld þar sem margt mjög skemmtilegt var rætt og mikið hlegið. Við fengum til okkar 9. bekkinga úr Réttó og buðum upp þeim upp á dýrindis vöfflur. Á 9. bekkjarkvöldi var einnig spurningakeppni sem vakti mikla lukku. Í janúar svöluðum við nostalgíuþörfinni okkar og horfðum á geimverumyndina E.T., við eigum reyndar eftir að klára hana. Til að toppa frábæran mánuð var haldin söngkeppni Kringlumýrar 27. janúar. og sendum við frá Bústöðum 5 atriði. Við vorum mjög stolt af okkar unglingum þrátt fyrir að þau hafi ekki náð sæti.
Nemendaráð Réttó og Bústaða er byrjað að leggja línurnar fyrir árshátíðina sem verður haldin í mars. Nú þegar hafa margir skráð sig í skreytinganefnd og skaupsnefnd og stefnir allt í hina glæsilegustu árshátíð.
Febrúar fer af stað með pompi og prakt þar sem sameiginlegt ball Kringlumýrar, Fimman, verður haldið næsta miðvikudag í Réttarholtsskóla. Stefnir allt í að 350 ungmenni komi til með að skemmta sér á ballinu en DJ Einar sér um að halda stuðinu gangandi. Framundan í febrúar er svo ótal margar skemmtanir sem enginn unglingur ætti að láta fram hjá sér fara.
Hafið þið það sem allra best. Bestu kveðjur, Bústaðir