Fréttir og tilkynningar

Jólin eru komin í Bústaði

12.12.2011

Við erum svo sannarlega komin í jólagírinn hér í Bústöðum! Síðastliðinn þriðjudag tókum við okkur til og skreyttum Bústaði og fengum okkur kakó. Á miðvikudaginn síðasta var svo jólabíó haldið í Réttarholtsskóla. Þar sem nemendaráð Hvassó, Réttó og Álftó voru búin að leiða saman hesta sína og undirbúa herlegheitin. Þessi vika sem er nú rétt að rúlla af stað er full af fjöri þar sem við ætlum að baka saman á þriðjudaginn, mála piparkökur og hafa það jólalegt á miðvikudaginn og svo ætlum við að loka vikunni með skautaferð á föstudaginn. Í vikunni þar á eftir fer fram stærsti viðburðu desember þann 19. des þar sem haldið verður jólaballa Réttó og Bústaða.

Sjáumst á næstunni í jólaskapi!  




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit