Fréttir og tilkynningar

Dagur félagsmiðstöðvanna 2. nóvember

31.10.2011

Félagsmiðstöðin Bústaðir fagnar í lok nóvember 35 ára afmæli og þeim tímamótum verður fagnað með ýmsu móti út mánuðinn. 35 ára hefð er fyrir því að foreldrum sé boðið að kíkja á starfið einn dag og á því verður engin undantekning í ár.

Félagsmiðstöðin Bústaðir býður foreldra og aðra hverfisbúa sérstaklega velkomna í heimsókn á dag félagsmiðstöðvanna 2. nóvember kl. 17-19 til þess að kynna sér það fjölbreytta og skemmtilega starf sem félagsmiðstöðin býður uppá fyrir börn og unglinga í 5. - 10. bekk.

Dagskrá:
-Unglingarnir sýna réttu handtökin við að útbúa brjóstsykur og bjóða gestum að smakka
-Starfsmenn Bústaða sötra kaffi og rifja upp gamla tíma í Bústöðum með fullorðna fólkinu
-Skartgripagerð, spil og unga kynslóðin skorar á þá eldri í borðtennis, pool eða PlayStation

Þetta er frábært tækifæri að sjá hvað félagsmiðstöðin Bústaðir hefur uppá að bjóða og hitta starfsfólkið sem þar starfar.




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit