Fréttir og tilkynningar

Stíll 2010
Stíll 2010 | 18.11.2010

Stíll er keppni á milli allra félagsmiðstöðva landsins þar sem keppt er í hárgreiðslu, förðun og fatahönnun út frá ákveðnu þema. Í ár er þemað tilfinningar. Hver félagsmiðstöð má senda eitt lið til keppninnar og í hverju liði mega vera 2-4 einstaklingar, þar af eitt módel. Keppt hefur verið í Stíl u...

 Spilakvöld 
Spilakvöld | 16.11.2010

Miðvikudaginn 17. nóvember verður spilakvöld í Bústöðum. Það er opið 17-19 og 19:30-22 á miðvikudögum.

 Rímnaflæði 2010 
Rímnaflæði | 16.11.2010

Rímnaflæði fer fram föstudaginn 19. nóvember í félagsmiðstöðinni Miðbergi. Keppnin hefst kl. 20.00 en húsið opnar kl. 19.30. Nýir og efnilegir rapparar stíga á svið og sýna frábæra laga– og textasmíð. Miðasala er hafin í Bústöðum og lýkur miðvikudaginn 17. nóvember kl. 16:00. Miðaverð er 1.000 kr. (...

 Félagsmiðstöðvadagurinn 2010 
Félagsmiðstöðvadagurinn í Reykjavík | 21.10.2010

Félagsmiðstöðin Bústaðir býður fjölskylduna velkomna í heimsókn á félagsmiðstöðvadaginn 27. október kl. 17-19 til þess að kynna það fjölbreytta og skemmtilega starf sem félagsmiðstöðin býður uppá fyrir börn og unglinga í 5. - 10. bekk.

 Vetrarfrí í Bústöðum 2010 
Opið í vetrarfríinu | 19.10.2010

Við í Bústöðum spýtum í lófana í vetrarfríinu og bjóðum uppá spennandi dagskrá. Grímuball í Réttó á miðvikudagskvöldið, draugahús á föstudagskvöldið og opið hús á mánudaginn.

 Frá sundlaugapartý Kringlumýrar 2009 
Sundlaugarpartý | 05.10.2010

Föstudaginn 8. október halda Bústaðir í samstarfi við félagsmiðstöðvarnar Buskann, Laugó, Tónabæ og Þróttheima sameiginlegt sundlaugarpartý í Sundhöllinni í Reykjavík. Skráning er hafin í Bústöðum og miðaverð er 500 kr. Sundhöllin verður lokuð almenningi þetta kvöld og bjóðum við 27 manns frá hverri...

 Þessi hákarl mætir ekki í Nauthólsvík 
Sjósund og kózýtime! | 14.09.2010

Á miðvikudaginn ætlum við að láta sjá okkur í sjónum við Nauthólsvík. Við leggjum af stað frá Bústöðum á hjólum kl. 17:00 og áætlum að vera komin aftur kl. 19. Opnum svo aftur með heitt kakó og kózý kl. 19:30.

 Karókí kvöld 
Karókí kvöld í Bústöðum | 01.09.2010

Á föstudaginn 3. september kl 19:30-23:00 ætlum við í Bústöðum að vera með tryllta karókí stemmningu! Allir þeir sem hafa einhvern áhuga á að syngja hress lög með öðrum ótrúlega skemmtilegum unglingum mæta á svæðið og vera með! Ekki missa af þessu! Þið, við og allir hinir! Sjáumst mega fersk!

 Bústaðir opna útibú í stofu 6 í Réttó 
Bústaðir opna útibú í Réttó | 01.09.2010

Föstudaginn 27. ágúst opnaði Félagsmiðstöðin Bústaðir útibú í stofu 6 í Réttarholtsskóla í tilraunaskyni. Útibúið er opið alla virka daga frá kl. 11:15-13:15, stundum opið fyrr og stundum lokar seinna.

 Bústaðir opna útibú í Réttó 
Opnunarkvöld | 01.09.2010

Félagsmiðstöðin Bústaðir heldur Góðan daginn daginn hátíðlegan með því að halda opnunarkvöld í kvöld! Það verður karnivalstemming í Bústöðum. Næg ókeypis bílstæði og allskonar skemmtilegheit!







Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit