Ráðstöfun frístundakorta vegna dvalargjalda í janúar
30.01.2012
Til forráðamanna barna á frístundaheimilum
Búið er að opna fyrir ráðstöfun Frístundakorts vegna dvalargjalda í janúar.
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um ráðstöfun hér. Þeir sem ráðstafa Frístundakorti eru vinsamlegast beðnir um að greiða ekki greiðsluseðil fyrr en hann hefur lækkað í bankakerfinu en það tekur 1-2 virka daga frá ráðstöfun.
Ekki verður sendur út nýr seðill með lægri upphæð
Ef þið eigið í erfiðleikum með að fá lykilorð til að skrá ykkur í Rafræna Reykjavík eða að ráðstafa Frístundakortinu þá vinsamlegast snúið ykkur til Símavers Reykjavíkurborgar í síma 411‐1111 eða til þjónustumiðstöðvar í ykkar hverfi.
Bestu kveðjur
Starfsfólk Vogasels