Fréttir og tilkynningar
Lokaball 8.-10. bekkjar í kvöld | 23.05.2012
Lokaball 8.-10. bekkjar verður haldið í Langholtsskóla í kvöld klukkan 20 - 22. Það kostar 200 krónur inn og sjoppann verður drekkhlaðin af góðgæti. Hvetjum alla til að mæta og kveðja yndislegu unglingana í 10. bekk á síðasta balli skólaársins.
Grill, glens og endalaus hamingja í kvöld | 18.05.2012
Kæru unglingar við viljum sjá sem allra flesta í kvöld því að í kvöld verður síðasta föstudags kvöldopnunin í vetur. Það er því ekki um annað að ræða en að fjölmenna í Þróttheima í kvöld og gæða sér á girnilegum grillmat og gleyma sér í glensi og gaum.
Maí - Dagskrá mánaðarins í Þróttheimum | 07.05.2012
Maí mánuður verður á sumarlegum nótum hjá okkur í Þróttheimum. Öll tækifæri sem gefast til þess að nýta góða veðrið verða nýtt. Við sólum okkur á svölunum, förum í kubb og hackysack og margt fleira. En svo auðvitað höldum við okkur inni þegar norðanáttin blæs hressilega á okkur.