Starfsdagur 27. janúar | 19.01.2012
Á föstudaginn 27. janúar næstkomandi er starfsdagur, þá er skóli einsog venjulega en lokað er hjá okkur í Laugarseli. Við sendum út póst varðandi starfsdaginn fyrir stuttu en munum minna aftur á hann þegar nær dregur.
Veturinn er víst ekkert að fara á næstunni svo við minnum foreldra á að senda börn vel klædd og helst með auka föt í töskunni, þar sem fötin eru fljót að blotna í svona veðri.
Minnum einnig foreldra á að MERKJA öll föt. Hér er stór hrúga af ómerktum fatnaði og gengur erfiðlega að finna eiganda ef flíkin er ómerkt.
kv Hildur og Elsa