Um Kringlumýri

Frístundamiðstöðin Kringlumýri
Safamýri 28
108 Reykjavík

Sími: 411 5400
Netfang: kringlumyri@itr.is
Heimasiða: www.kringlumyri.is

Skrifstofa Kringlumýrar er opin alla virka daga milli kl. 08:15 og 16:00.

Frístundamiðstöðin Kringlumýri stendur fyrir viðamiklu starfi með börnum og ungmennum frá Fossvogi að Sundum. Mikið er lagt upp úr því að bjóða upp á fjölbreytt og áhugavert frístundastarf. Uppbygging þjónustu í frítímanum er ein af kröfum nútímans. Þar á að vera vettvangur tómstunda, menntunar, menningar og uppeldis undir handleiðslu hæfra starfsmanna. Starfsemi Kringlumýrar skiptist í barna- og unglingastarf:

Undir stjórn deildarstjóra barnastarfs eru rekin sjö frístundaheimili; Neðstaland við Fossvogsskóla, Sólbúar við Breiðagerðisskóla, Krakkakot við Hvassaleitisskóla, Álftabær við Álftamýrarskóla, Vogasel við Vogaskóla, Laugarsel við Laugarnesskóla og Glaðheimar við Langholtsskóla.

Undir stjórn deildarstjóra unglingastarfs eru reknar fimm félagsmiðstöðvar; Buskinn í Vogaskóla, Bústaðir í kjallara Bústaðakirkju, Laugó í Laugalækjarskóla, Tónabær við Safamýri og Þróttheimar við Holtaveg.

Undir stjórn deildarstjóra frítímastarfs fatlaðra barna heyrir ráðgjöf varðandi allt starf sem viðkemur börnum og unglingum með fötlun hjá Íþrótta- og tómstundasviði Reykjavíkur sem og rekstur á frístundaheimili og frístundaklúbbum fyrir börn og unglinga með fötlun. Frístundaheimilið Gulahlíð er fyrir nemendur í 1.-4. bekk Klettaskóla, frístundaklúbburinn Garður er fyrir nemendur í 5.-7. bekk Klettaskóla, félagsmiðstöðin Askja er fyrir nemendur í 8.-10.bekk Klettaskóla og frístundaklúbburinn Hofið er fyrir ungmenni með fötlun í 5.-10. bekk sem sækja almenna grunnskóla í Reykjavík vestan við Elliðaá.

Að auki heldur deildin utan um öll börn sem þurfa sérstakan stuðning sökum fötlunar og/eða þroskafrávika á almennum frístundaheimilum í borginni. Frístundamiðstöðin Kringlumýri er þekkingarmiðstöð málefna barna og unglinga með fötlun hjá Íþrótta- og tómstundasviði.

Allar deildirnar vinna saman að öðrum verkefnum sem snúa að hverfahátíðum og öðrum viðburðum/verkefnum sem tengjast hverfisbúum og samstarfsaðilum í hverfinu.

Kringlumýri leggur metnað sinn í að veita öfluga og umfangsmikla þjónustu á vettvangi frítímans og býður íbúa hverfisins velkomna til samstarfs



Frístundakortið




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit