Öskudagur og vetrarfrí
21.02.2012
Gleðilegan sprengidag allir,
Við viljum vekja athygli á því að seinni hluti vikunnar 20.febrúar til 24.febrúar verður með breyttu sniði.
Þriðjudagur (sprengidagur) verður venjulegur dagur hjá okkur en miðvikudagurinn (öskudagur) verður hins vegar aðeins öðruvísi, þá koma börnin í Glaðheima klukkan 12:00 í stað 13:30.
Starfsmenn skólans ætla að ganga með börnunum yfir til okkar, þar sem starfsmenn Glaðheima taka á móti börnunum í öskudagsskapi og að sjálfsögðu í búningum.
Á fimmtudaginn 23.febrúar og föstudaginn 24.febrúar er vetrarfrí í Langholtsskóla og í Glaðheimum og er lokað á báðum stöðum þá daga.
Frístundarútan gengur heldur ekki á fimmtudaginn 23.febrúar.
Bestu kveðjur,
Sandra og Snorri Freyr