Fréttir og tilkynningar

Framundan í Bústöðum

20.02.2012

Við í Bústöðum slúttuðum síðustu viku með glæsilegu FIFA2012 móti en þeir Axel og Gummi báru sigur úr bítum og fengu að launum glæsileg verðlaun. Þessi vika sem nú er að hefjast er stútfull af fjöri, eins og flestar aðrar vikur. Áfram heldur árshátíðarundirbúningurinn en það stefnir allt í hina glæsilegustu árshátíð. Þriðjudagskvöldið ætlum við að taka niður skráningu fyrir 9. bekk á SamFestinginn en þeim standa til boða 15 miðar. Sama kvöld ætlum við að sýna leik Chelsea og Napoli í meistaradeildinni og bjóða upp á yoga og slökun.

Miðvikudaginn verður svo öskudags-bingó kapphlaup fyrir 6. og 7. bekk og veitt verða verðlaun fyrir flottasta búninginn. Um kvöldið koma þeir sem fengu miða á SamFestinginn og borga og skila leyfisbréfi, þeir sem borga ekki á miðvikudaginn missa miðann sinn til næsta á biðlista. Á föstudaginn ætlum við að fara í fimleikasalinn Björk, þeir sem hafa áhuga á að koma með okkur geta sent okkur póst á Facebook.

 Hafið það sem allra best.

Kveðja,

Bústaðir  




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit