Frístundamiðstöðin Kringlumýrir rekur tvo frístundaklúbba fyrir börn og unglinga með fötlun á aldrinum 10-16 ára sem eru búsett vestan Elliðaáa. Þá rekur Frístundamiðstöðin Gufunesbær Frístundaklúbbinn Höllina sem þjónustar börn og unglinga í Grafarvogi og Frístundamiðstöðin Miðberg rekur Frístundaklúbbinn Hellinn sem þjónustar börn og unglinga í Grafarholti, Árbæ, Norðlingaholti og Breiðholti.
Klúbbarnir eru opnir eftir að skóladegi lýkur til 17:00 alla virka daga. Klúbbarnir eru einnig opnir frá kl. 8-17 í öllum skólafríum fyrir utan vetrarfrí en þá eru klúbbarnir lokaðir. Opið er allan daginn í páska-, jóla- og sumarfríum, starfsdögum skólanna og foreldraviðtalsdögum.
Meginmarkmið með starfinu er að bjóða upp á fjölbreytt og spennandi frístundatilboð þar sem uppeldisgildi frítímans eru höfð að leiðarljósi.
Stefnt er að því að tengja þetta starf þeim tilboðum sem nú þegar standa þessum aldurshópi til boða í hverfunum
Frístundaklúbburinn Hofið
Sólheimum 35 - 104 Reykjavík
Auður Björk H. Kvaran, gsm: 664 7774
hofid hofid@reykjavik.is
Frístundaklúbburinn Garður
Vesturhlíð 3 - 105 Reykjavík
Ólöf Haflína Ingólfsdóttir, s: 411 5441, gsm: 695 5143
gardur gardur@reykjavik.is