Fréttir og tilkynningar

Janúar í Þróttheimum

16.01.2012

Nú er allt að komast á gott skrið hjá okkur í Þróttheimum á nýju ári. Starf fyrir 5.-7. bekk hefst í þessari viku með örlitlum breytingum frá því í fyrra. Fjöldi nefnda vinna nú í hverri viku að því að skipuleggja skíða- og brettaferðina sem farin verður dagana 9-11. mars og lýtur allt út fyrir að það séu spennandi tímar framundan. Dagskrá mánaðarins má sjá hér og hérna hægra megin. Athugið dagskráin er fyrir unglingastig.

Örlitlar breytingar verða á opnunartímum fyrir 5.-7. bekk. Framvegis verður opið fyrir 5. og 6. bekk á þriðjudögum klukkan 14-16:30 í hverri viku. En nú verður opið fyrir 7. bekk á miðvikudögum milli 17-19 í hverri viku. Opnanir fyrir 5.-7. bekk hefjast í þessari viku.

Miðvikudaginn 17. janúar verður haldið ball fyrir 6.-7. bekk í Þróttheimum klukkan 17:30 - 19:00. Sjoppa verður á staðnum með einhverskonar góðgæti og mun kosta litlar 200 kr. á ballið. ATH! ballið er haldið í Þróttheimum en ekki í Langholtsskóla.

Í síðustu viku fór hópur unglinga ásamt starfsmönnum í Bláfjöll á skíði og bretti og skemmtu allir sér einstaklega vel. Við fengum gott færi og fallegt kvöldveður. Sum þeirra sem komu með voru að prufa að renna sér í fyrsta eða annað skiptið en aðrir voru vel vanir. Í ferðina komu líka unglingar sem voru að nýta tækifærið og æfa sig fyrir skíða- og brettaferðina í mars n.k. Myndir koma fljótlega á vefinn.

ATH! skv. dagskránni átti að vera ball í þessari viku fyrir unglingana líka. En því var frestað fram á miðvikudaginn 25. janúar.

Verið dugleg að fylgjast með hér á vefnum og skoðið dagskránna fyrir janúar mánuð.

kv. Þróttheimar




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit