Vetur Kringlumýri ÍTR Rafræn Öskjuhlíðarskóli Sjónarhóll Tákn
 
 

Félagsmiðstöðin Askja

 
Ása Rún Ingimarsdóttir
 
Verkefnastjóri
 
 

4.3.2010

Lok febrúar og fyrsta vikan í mars.

Á bolludaginn voru bakaðar alltof  margar bollur en það var allt í lagi því bolludagurinn er bara  einu sinni á ári. Á öskudaginn var mikið fjör. Nánast allir voru í búning, bæði starfsmenn og unglingar. Mánudaginn 1. mars var klúbbastarf. Í boði voru tónlistaklúbbur, tölvuleikjaklúbbur og landafræðiklúbbur. Í tónlistaklúbbnum var farið í tónlistabúð þar sem er hægt að prófa hljóðfæri. Í tölvuleikjaklúbbnum var FIFAmót.  Landafræðiklúbburinn skoðaði myndbönd tengd landafræði t.d. eldgos og hreindýr.


11.2.2010

Vikan 25.-29. janúar

 

Á mánudaginn var klúbbastarf. Við vorum með bökunarklúbb, fjölmiðlaklúbb og útivistaklúbb. Í bökunarklúbbnum voru bökuð skinkuhorn sem allir fengu að gæða sér á, þau voru gómsæt. Á miðvikudaginn voru stelpurnar með skvísuklúbb, gert var í hár, naglalakkað og fleira. Annar hópurinn gerði pönnukökur og þriðji var með FIFAmót. Á föstudeginum var íþróttamót þar sem allir sýndu framúrskarandi hæfileika í hinum ýsum þrautum. Eftir það PULSUPARTÝ. Skemmtileg vika.


3.2.2010

Umsóknir fyrir skólaárið 2010-2011

Til:

Foreldra/forráðamanna barna í 1.-9. bekk

í Öskjuhlíðarskóla

 

 

Frístundaheimili ÍTR

Umsóknir fyrir skólaárið 2010-2011

 
 
 

[ MEIRA ]

Fleiri fréttir