Vetur Kringlumýri ÍTR Rafræn Öskjuhlíðarskóli Sjónarhóll Tákn
 
 

haustið í öskju

Það er búið að vera mikið fjör í Öskju í haust, erum búin að koma okkur vel fyrir í nýja stóra flotta húsinu okkar og allir hæst ánægðir með það. Við höfum verið að bardúsa ýmislegt í félagsstarfinu; í klúbbastarfi, vali, hópastarfi og föstudagsfjöri.

Á önninni er búin að vera tvö böll og bæði stórskemmtileg, annað var haustballið og þar var nú heldur betur dansað við tónlist og diskóljós. Seinna ballið var með grænu þema og þá koma margir í grænni flík og við bjuggum til grænan mat þ.a.m vöfflur, mjólk, vatn, glassúr og piparkökur, allt grænt á litin, einnig var dansað, spilað billjard og margt fleira. Hægt er að sjá myndir af böllunum í myndasafni J