Vetur Kringlumýri ÍTR Rafræn Öskjuhlíðarskóli Sjónarhóll Tákn
 
 

3.vika

Yndisleg sólarvika ;-)

Vikan byrjaði á því að við fórum með strætó upp að Reynisvatni að veiða. Við veiddum ýmislegt annað en fiska, lékum okkur í leiktækjunum og fórum í gönguferðir.

 

Daginn eftir fórum við á Árbæjarsafnið, þvílíkt skemmtilegt, svo mikið hægt að skoða þar og vera úti að leika.

 
Á sunddeginum okkar fórum við í Álftaneslaugina, rosalega gaman, bongóblíða og frábær öldulaug.

 

Á fimmtudeginum, mættu tvær lögreglur á lögreglubíl til okkar. Þær voru alveg frábærar, leyfðu okkur að skoða allt, prófa húfur, sitja í bílnum og sjá blikkljósin. Eftir hádegi þann dag, fórum við niður á tjörn að gefa búsnu öndunum að borða.

 

Á föstudeginum fórum við í gönguferð upp í Perlu og grilluðum pylsur í hádeginu.

 

Takk fyrir góða viku, bestu kveðjur frá starfsfólki Guluhlíðar:-)