Önnur frábær vika sumarfrístundar gekk vel
Við byrjuðum vikuna á að dorga niður við höfn, mikil einbeiting hjá krökkunum. Ekki náðum við að veiða fisk að þessu sinni, en við sáum aðra krakka veiða lítinn ufsa.
Á þriðjudeginum fórum við í Húsdýragarðinn í blíðskaparveðri. Það er alltaf jafn gaman að skoða dýrin og enda svo á að hoppa á stóra hoppipúðanum.
Á miðvikudeginum mættu söngsystur til okkar snemma morguns og myndaðist mjög góð stemmning, krakkarnir dugleg að syngja og spila á hljóðfæri.
Við fórum svo í sund í Laugardalslaugina, sem var mjög skemmtilegt.
Í dag föstudag fóru krakkarnir í góðan göngutúr upp um nágrennið og svo var allsherjar grillveisla í hádeginu, gaman gaman.
Takk fyrir vikuna og góð kveðja frá starfsfólki Guluhlíðar.