Sumarvefur Litavika Vatnsvika Óvissuvika Náttúruvika
 
 

Íþróttaskólinn

Íþróttaskólinn samvinnuverkefni íþróttafélaga, íþróttabandalags Reykjavíkur, Grunnskóla Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar. 

Íþróttaskólarnir eru reknir af íþróttafélögum í skólahverfinu og starfræktir innan frístundaheimila ÍTR. Íþróttatímarnir eru haldnir í Framheimilinu og eru á þeim tíma sem börnin eru á frístundaheimilinu. Reykjavíkurborg býður öllum 6 ára börnum í grunnskólum Reykjavíkur frían aðgang að íþróttaskólanum tvisvar sinnum í viku.

Íþróttaskóli er byggður á þeirri hugmynd að útfæra íþróttir í leikrænu formi og gera alla að þátttakendum á eigin forsendum. Í íþróttaskólanum eru margar íþróttir kynntar og prófaðar í einföldu formi sem höfða til barna. Áhersla er lögð á grunnþjálfun og leiki en ekki á frammistöðu, árangur eða keppni.

Markmið íþróttaskóla er:
-að stuðla að því að fyrstu kynni barna af íþróttum verði jákvæð
-að efla líkamlega og félagslega færni barna
-að gera íþróttaiðkun aðgengilega
-að bjóða öllum að vera þátttakendur
-að gera íþróttir skemmtilegar
-að gefa börnum tækifæri til að leika sér með félögum sínum
-að sjá til þess að börn upplifi sig á jákvæðan hátt og fái aukið sjálfstraust

Ekki þarf að útskýra í mörgum orðum hve mikilvægt það er fyrir börn að fá fjölbreytta hreyfiþjálfun. Börn með slakan hreyfiþroska eru síður tilbúin í ýmsa námsþætti í skólanum sem krefjast einbeitingar og fínhreyfinga. Í íþróttum og leikjum læra börn að fara eftir settum reglum. Þar er einnig vettvangur til að þjálfa m.a. einbeitingu, umburðarlyndi og tillitssemi. Það er mikilvægt fyrir börn að læra að vera í hópi og takast á með jákvæðum formerkjum. Það skiptir t.d. máli að börn þori að vera þátttakendur með öðrum börnum í hópleikjum í fímínútum í grunnskólanum. 

Umsjónarmaður Íþróttaskólans er Pálmi Vilhjálmsson,  hann er íþróttakennari í Fjölbrautaskólanum við Ármúla og hefur hann séð um íþróttaskólann síðan árið 2004.
 

Veturinn 2009-2010 eru tímar íþróttaskólans á mánudögum og miðvikudögum. Börnunum er skipt í hópa eftir kynjum og er fyrri hópurinn kl. 15:15-15:55 og seinni hópurinn frá 15:55-16:35. Á mánudögum eru strákar í fyrri hóp en stelpur í seinni hóp en því er svo hagað öfugt á miðvikudögum.