Wipe-out í Nauthólsvík
Á miðvikudaginn 30. júní var haldin heljarinnar Wipe-out keppni í Nauthólsvík þar sem börnin fengu að spreyta sig á stórri og krefjandi þrautabraut. Meðal þeirra hindrana sem þurfti að yfirstíga má nefna stóru "rauðu" boltana (sem reyndar voru mislitir að þessu sinni). Myndir frá þessari bráðskemmtilegu keppni má finna í myndaalbúminu okkar hérna vinstra megin á síðunni.